Enski boltinn

Tveir ní­tján ára hand­teknir fyrir nauðgun

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ekki liggur fyrir með hvaða félagi leikmennirnir leika með.
Ekki liggur fyrir með hvaða félagi leikmennirnir leika með. getty/Catherine Ivill

Um helgina voru tveir leikmenn úr sama félaginu í ensku úrvalsdeildinni handteknir vegna gruns um nauðgun. Leikmennirnir eru báðir nítján ára.

Annar þeirra var yfirheyrður á leikvangi félagsins sem hann leikur með vegna gruns um aðild að nauðguninni. Hann er grunaður um að hafa hvatt samherja sinn til að framkvæma verknaðinn.

Hinn leikmaðurinn var handtekinn á leikvangi félagsins daginn eftir og í kjölfarið yfirheyrður.

Báðum leikmönnunum var sleppt gegn tryggingu. Félagið sem þeir leika með hefur ekki viljað tjá sig um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×